Tuesday, January 1, 2013

Nýársdagur..

Varð svo þakklát og hissa þegar ég sá hvað síðan mín hefur fengið margar flettingar síðustu daga....er komin í 700 :-)

Takk allar fyrir fallegu kommentin...gaman að fá svona yndislegar kveðjur :-)


------------------------------------------------------------------------------

Ég rakst á nýtt blogg þegar ég var á rúntinum á netinu, langaði að deila því með ykkur...smellið hérna til að fara á síðuna hennar. Gat gleymt mér við að skoða fallegu hlutina hennar, og hún tekur svo fallegar myndir af þeim.
Langar svo að eignast svona !

svo milt og rómantískt

Pastel litir eru svo fallegir...ég viðurkenni að það er alls ekki langt síðan ég byrjaði að hrífast af þeim en það er eitthvað við þá...þeir eru svo mildir og rómantískir.

Þessi sími tæki sig mjög vel út hérna hjá mér !

Coral litur er minn litur, klárlega...myndi una sér einkar vel í prinsessu herberginu.



Það þarf ekkert að segja neitt um þessann sófa...



p.s. munið að henda aldrei römmum, þrátt fyrir að ykkur finnst þeir ljótir, ekki réttur litur eða þótt glerið sé brotið. Rammar geta gert svo margt skemmtilegt einir og sér upp á vegg og þeir eru yfirleitt það léttir að það þarf ekkert annað en kennaratyggjó til að festa þá upp á vegg, þá sleppum við naglaförin leiðinlegu ;-)




+
mála þá í draumalitunum og stilla þeim upp á hillu eða borði...jafnvel á gólfið :-)


Vona að áramótin hafi verið ykkur góð...
Gleðilegt nýtt ár !



No comments:

Post a Comment

Ertu að reyna kommenta? Hakaðu við Anonymous ef þú ert í vandræðum :-)