Saturday, December 29, 2012

Komin í bloggheiminn !

Hef mikla ánægju á að skoða blogg annarra og eru þau blogg sem innihalda fallegar myndir af fallegum heimilum í miklu uppáhaldi.
Þetta litla blogg mitt verður vonandi fullt af fallegum myndum sem veita mér innblástur.


Er dugleg að breyta og gera fallegt í kringum mig hérna heima...margir mjög hissa á þessu breytingaræði mínu en eins og ein góð setning segir sem ég rakst á í dag í nettímariti frá Home and delicious.
"Heimili er verkefni í vinnslu".

Rakst á þetta blogg í dag og þessi þrjú nettímarit sem eru komin út frá þeim lofa einkar góðu og mig hlakkar til að fylgjast með þeim áfram.


http://www.homeanddelicious.is/




Vona að þið séuð búin að hafa það sem allra best yfir hátíðirnar. Við erum búin að vera öll saman í fríi og það er búið að vera yndislegt, en mikið verður samt gott að komast í rútínuna aftur. Rútínan er mikilvæg í mínu lífi !

Vona að þið nennið að fylgjast með mér og endilega verið dugleg að skilja eftir línu :-)

4 comments:

  1. Þú ert svo dugleg! Er búin að bókmerkja og hlakka til að fylgjast með :)

    ReplyDelete
  2. Velkomin i hopinn. Hlakka til ad fylgjast med ther!
    KV. Brynja

    ReplyDelete
  3. Takk kærlega fyrir Brynja:-)
    Fallegt bloggið þitt,gaman að fylgjast með þér.
    Kveðjur.

    ReplyDelete

Ertu að reyna kommenta? Hakaðu við Anonymous ef þú ert í vandræðum :-)